Áminningin dregin til baka 29. nóvember 2010 04:00 Gísli Ragnarsson
Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra hefur dregið til baka áminningu sem forveri hennar í embætti veitti Gísla Ragnarssyni, skólameistara Fjölbrautaskólans við Ármúla, í kjölfar álits umboðsmanns Alþingis. Skólameistarinn var árið 2008 sakaður um að hafa oftalið fjölda nemenda sem luku prófi í dönsku við skólann árið 2005, með þeim afleiðingum að fjárframlög ríkisins til skólans hafi verið hærri en þau hefðu átt að vera. Hann var í kjölfarið áminntur. Baldur Gíslason, skólameistari Tækniskólans, var áminntur fyrir sömu sakir. Hann ætlar nú að fara fram á að áminning hans verði dregin til baka. Þrír skólameistarar til viðbótar fengu tiltal. Gísli og Baldur sögðu frá upphafi að ásakanirnar væru tilhæfulausar. Þeir óskuðu báðir eftir því að ráðuneytið drægi áminninguna til baka, en því var hafnað. Gísli skaut málinu í kjölfarið til umboðsmanns Alþingis, sem komst nýverið að þeirri niðurstöðu að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, þáverandi menntamálaráðherra, hafi ekki gætt jafnræðis þegar hún áminnti Gísla en veitti þremur öðrum skólameisturum tiltal vegna sambærilegra saka. Í kjölfarið óskaði Gísli eftir því að menntamálaráðherra drægi áminninguna til baka, og varð ráðherra við því 4. nóvember síðastliðinn. Umboðsmaður tók ekki afstöðu til þess hvort ásakanirnar áttu við rök að styðjast. - bj
Mest lesið Um átta þúsund norður-kóreskir hermenn á landamærunum Erlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Horfði á lík fljóta fram hjá Erlent Dómur fyrir að nauðga fermingarstúlkum staðfestur Innlent Stefna ríkinu vegna framgöngu lögreglu Innlent Steinþór „svo skelfdur eða forviða“ að hann gat ekki gætt sín Innlent Matráður segir upp á Mánagarði Innlent Sigurður handtekinn í stærsta kristal-amfetamínmáli sögunnar Innlent Þrír fluttir á slysadeild eftir árekstur við Húnaver Innlent „Pabbi minn hefði örugglega orðið reiður“ Innlent Fleiri fréttir Stefna ríkinu vegna framgöngu lögreglu Flokkshollusta á undanhaldi Þrír fluttir á slysadeild eftir árekstur við Húnaver Mikið vinnuálag til að ná launum upp sem læknir Kristrún hefur beðið Dag afsökunar Steinþór „svo skelfdur eða forviða“ að hann gat ekki gætt sín Tæpur helmingur grunnskóla hefur bannað síma Læknar í verkfall, ellefu framboð og hrekkjavaka í Vesturbæ Máttu ekki selja eldaðan mat Sigurður handtekinn í stærsta kristal-amfetamínmáli sögunnar Sigurjón leiðir í Norðausturkjördæmi „Tifandi tímasprengjur“ á leið út í samfélagið Læknar á leið í verkfall Guðmundur Ingi leiðir og skrifstofustjórinn í öðru Dómur fyrir að nauðga fermingarstúlkum staðfestur Viðsnúningur í manndrápsmáli í Landsrétti Formaður Lýðræðisflokksins sagður misbeita samsæriskenningu „Pabbi minn hefði örugglega orðið reiður“ Fékk slá í höfuðið og málið fer fyrir Hæstarétt Borgarfulltrúi skipar annað sætið í kjördæmi formannsins Risastór ákvörðun íbúa í Þorlákshöfn handan við hornið Hvetja Ísland til að draga enn frekar úr losun Stórt skref stigið í átt að fullgildri aðild Færeyja, Álandseyja og Grænlands Framboðslisti Flokks fólksins í Suðurkjördæmi birtur Á ekki von á að þeim fjölgi sem þurfi innlögn vegna E.coli Fækka áramótabrennum í Reykjavík um fjórar Þau skipa framboðslista Pírata í kosningunum Bein útsending: Vítt og breitt um almannavarnamál „Þegar þú liggur yfir þessu dag og nótt þá byrjar þú að þekkja þá“ Máttu ekki hvetja hlunnfarið starfsfólk til að hætta Sjá meira