Erlent

Tvær konur skotnar af leyniskyttunni í Malmö

Leyniskyttan í Malmö í Svíþjóð lét aftur til skarar skríða í gærkvöldi og skaut tvær konur inn um glugga á íbúð þeirra. Báða konurnar sluppu lifandi en illa særðar úr tilræðinu.

Þær eru báðar nýbúar en leyniskyttan skýtur eingöngu á fólk af erlendu bergi brotið. Þar með hefur þessi leyniskytta skotið á 18 manns í Malmö á síðustu mánuðum.

Samkvæmt sænskum fjölmiðlum hefur sænska lögreglan beint rannsókn sinni á málinu m.a. að öfgahópum til hægri í borginni. Lögreglan segir að staðan í Malmö sé hættuleg meðan að þessi leyniskytta leikur þar lausum hala.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×