Innlent

Dómari tók sér frest til að úrskurða um gæsluvarðhald

Dómari tók sér í gærkvöldi frest til að úrskurða um kröfu lögreglunnar í Árnessýslu um gæsluvarðhaldsúrskurð yfir þremur mönnum, sem réðust með ofbeldi inn í heimahús á Selfossi í fyrrakvöld og rændu þar ýmsum verðmætum.

Þeir ógnuðu íbúunum með hnífum, slógu þá, höfðu uppi líflátshótanir og rændu símum þeirra, svo þeir gætu ekki kallað eftir hjálp. Allir árásarmennirnir eiga afbortaferil að baki, meðal annars fyrir ofbeldisverk og brot á fíkniefnalöggjöfinni.-








Fleiri fréttir

Sjá meira


×