Innlent

Tunglmyrkvinn: Ljósmyndasamkeppni Vísis og Fréttablaðsins

Fréttablaðið og Vísir efna til samkeppni um bestu myndina af tunglmyrkvanum, sem verður í fyrramálið kl. 7.40-8.54. Í fyrstu verðlaun er glæsileg Sony NEX myndavél og leikhúsmiðar í 2. og 3. verðlaun.

Myndunum skal skila inn á netfangið ljósmyndakeppni@frettabladid.is fyrir kl. 15 á morgun, þriðjudag. Vinningsmyndin verður birt bæði í Fréttablaðinu á miðvikudag og á Vísi ásamt fleiri myndum sem dómnefnd telur athyglisverðar.

Sony NEX-3 vél í vinning, að verðmæti 109 þúsund krónur.
Ef veður leyfir sést myrkvinn vel frá Íslandi. Spáð er heiðskíru veðri á höfuðborgarsvæðinu. Tunglið verður tiltölulega lágt á lofti á vesturhimni, rétt fyrir ofan Óríon, milli fótleggja Tvíburanna og horna Nautsins. Myrkvinn hefst kl. 7.40 og stendur til kl. 8.54.

Nánari upplýsingar um Sony NEX er að finna hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×