Enski boltinn

Liverpool tapaði fyrir botnliðinu á heimavelli

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Liverpool tapaði í kvöld sínum áttunda leik á tímabilinu í ensku úrvalsdeildinni - í þetta sinn fyrir botnliði Wolves á heimavelli, 1-0.

Þetta var annar tapleikur Liverpool á heimavelli á tímabilinu en hinn var fyrir nýliðum Blackpool í lok október. Tapið í kvöld var þó líklega verra enda Wolves ekki unnið einn einasta leik á útivelli á tímabilinu þar til í kvöld og tapað síðustu sjö í röð.

Staða Roy Hodgson hjá félaginu hlýtur að teljast slæm og spurning hvort að Liverpool verði kominn með nýjan knattspyrnustjóra þegar keppni í deildinni heldur áfram á nýju ári.

Fyrri hálfleikur var ekki mikið fyrir augað ef frá er talið dauðafæri sem Raul Meireles fékk í upphafi leiksinsn. Hann skaut hins vegar beint á markvörð Wolves.

Það var svo á 56. mínútu sem Stephen Ward skoraði eina mark leiksins en hann renndi boltanum framhjá Pepe Reina í marki Liverpool eftir stungusendingu Sylvan Ebanks-Blake.

Liverpool virtist hafa náð jöfnunarmarkinu á 88. mínútu er Martin Skrtel skallaði knöttinn í netið eftir aukaspyrnu en hann var réttilega dæmdur rangstæður.

Ryan Babel og Joe Cole voru báðir á bekknum í kvöld. Þeir komu inn á sem varamenn í síðari hálfleik en það virtist litlu breyta. Annars var Steven Gerrard aftur kominn í byrjunarlið Liverpool eftir sex vikna fjarveru vegna meiðsla og Fernando Torres lék allan leikinn í sókninni.

Liverpool lék síðast þann 15. desember og mættu því vel hvíldir til leiks í kvöld. Hins vegar þarf liðið að leika fjóra leiki á næstu tveimur vikum og ljóst að ef Roy Hodgson lifir þann tíma í sínu starfi þarf hann að skila betri árangri en í kvöld.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×