Erlent

Vetrarhörkur um mitt sumar í Ástralíu

Þrátt fyrir að mitt sumar sé nú í Ástralíu ríkja þar sömu vetrarhörkurnar og í Evrópu í sumum hlutum landsins.

Þannig féll 30 sentimetra jafnfallinn snjór í New South Wales og 10 sentimetrar í Viktoríu. Raunar er hægt að opna skíðabrekkur að nýju vegna snjókomunnar í báðum þessum ríkjum.

Við Gold Coast hefur stormur valdið því að 10.000 heimili og fyrirtæki eru án rafmagns og íbúar í vesturhluta Ástralíu eru að glíma við verstu flóð á síðustu 50 árum. Flóðin hafa valdið verulegum usla á kornökrum og búfénaði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×