Erlent

Tveir látast í árás á Gasa

Árásin skildi eftir sig sprengjugíg skammt frá öryggisgirðingunni.nordicphotos/afp
Árásin skildi eftir sig sprengjugíg skammt frá öryggisgirðingunni.nordicphotos/afp

Ísraelsmenn skutu niður tvo Palestínumenn í loftárás á Gasa, en samkvæmt ísraelska hernum ætluðu mennirnir að koma fyrir sprengjum á öryggisgirðingu á landamærunum við Ísrael.

Palestínumenn svöruðu með tveimur eldflaugaskotum sem lentu í Negev-eyðimörkinni. Engan sakaði. Ísraelar hafa varað við því að stríð sé einungis tímaspursmál og leiðtogar Hamas lofa að svara öllum árásum af hörku. Samkvæmt tölum SÞ hafa yfir 60 Palestínumenn og einn Ísraeli látist í hernaðarátökum á Gasa í ár.- tg




Fleiri fréttir

Sjá meira


×