Erlent

Ekkert dregur úr spennunni á Kóreuskaganum

Ekkert dregur úr spennunni á Kóreuskaganum og ganga hótanir á víxl á milli stjórnvalda í Norður og Suður Kóreu.

Suður Kóreumenn hóta hefndum fyrir stórskotaliðsárásina í gærmorgun og Norður Kóreumenn hóta áframhaldandi hernaðaraðgerðum gegn nágranna sínum.

Barack Obama Bandaríkjaforseti hefur fordæmt árás Norður Kóreumanna en það hefur Evrópusambandið einnig gert sem og Rússar og Japanir. Kínverjar hvetja deiluaðila til að taka því rólega.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×