Innlent

NATÓ aðmíráli var synjað um skoðunarferð i Höfða

Reykjavíkurborg hafnaði ósk yfirmanns hjá NATÓ sem hér var í opinberum erindagjörðum um að fá að skoða Höfða. Jón Gnarr, borgarstjóri, var aldrei látinn vita, segir skrifstofustjóri borgarstjóra.

James G. Stavridis aðmíráll, yfirmaður herafla NATO í Evrópu, var hér í opinberri heimsókn í nóvember og fundaði m.a með utanríkisráðherra, forsætisráðherra og embættismönnum meðan að á heimsókn hans stóð hér í nóvember síðastliðnum.

Samkvæmt heimildum fréttastofu hafði Stavridis sýnt því áhuga að heimsækja Höfða, þar sem leiðtogafundur Reagans og Gorbatsjovs var haldinn árið 1986 síðasta daginn sinn hér, hinn 6. nóvember. Og var farið þess á leit við Reykjavíkurborg að leyfa honum að skoða hið sögufræga hús.

Afturkallað leyfi

Regína Ásvaldsdóttir, skrifstofustjóri borgarstjóra, staðfesti við fréttastofu í dag að slík bón hafi komið fram og að ekki hafi verið orðið við henni. Fréttastofa fékk upplýsingar um að bóninni hafi verið synjað vegna andstöðu borgarstjórans, sem er yfirlýstur friðarsinni og honum hafi ekki þóknast að verða við ósk frá hermanni. Regína fullyrðir að Jón Gnarr borgarstjóri hafi aldrei fengið vitneskju um bónina. Það stangast á við heimildir fréttastofu, en samkvæmt upplýsingum fréttastofu var leyfi veitt fyrir skoðunarferðinni en það leyfi síðan afturkallað.

Regína sagði ákvörðunina hafa verið sína og að ákveðnar reglur gildi um móttökuhús borgarstjóra. Beiðni um heimsókn hafi þurft að hennar mati að vera á formlegri nótum í samræmi við þær reglur sem gildi um móttökur í Höfða. Auk þess hafi þurft að kalla út mannskap til að vera þarna með stuttum fyrirvara á laugardagsmorgni og þá skuli opinberar móttökur ekki haldnar á laugardögum, eins og komi fram í reglum um opinberar móttökur Reykjavíkurborgar. Regína sagðist líta svo á að heimsókn Stavridis hafi verið móttaka í skilningi reglnanna. Þess ber að geta að Stavridis og aðstoðarmenn hans vildu skoða húsið, en báðu ekki um fund með borgarstjóranum.

Lokadegi sínum hér varði Stavridis með því að heimsækja Víkingasafnið í Reykjanesbæ og Bláa lónið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×