Erlent

Abba stjarna tapar dómsmáli

Anni-Frid Reuss, betur þekkt sem Abba stjarnan Frida, hefur tapað dómsmáli gegn Marcus Bongart leiðtoga qigong musterisins í Svíþjóð.

Frida taldi sig hafa lánað Bongart fjárhæð sem samtals nemur 46 milljónum sænskra króna eða um 750 milljónir króna á nokkurra ára tímabili en Bongart segir að um gjafir til musterisins hafi verið að ræða.

Sænskur dómstóll dæmdi Bongart í hag og var Fridu gert að greiða sakarkostnað málsins. Frida sem orðin er 65 ára gömul býr nú í Sviss.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×