Innlent

Leggja fram eina tillögu og vilja 26 milljónir

Magnús Már Guðmundsson skrifar
Frá blaðamannafundinum þegar tilkynnt var um stofnun Hreyfingarinnar, 18. september 2009. Margrét Tryggvadóttir, Birgitta Jónsdóttir og Þór Saari. Mynd/Vilhelm Gunnarsson
Frá blaðamannafundinum þegar tilkynnt var um stofnun Hreyfingarinnar, 18. september 2009. Margrét Tryggvadóttir, Birgitta Jónsdóttir og Þór Saari. Mynd/Vilhelm Gunnarsson

Hreyfingin fer fram á að fá rúmar 26 milljónir af fjárlögum næsta árs þar sem að gæta þurfi jafnræðis í opinberum fjárframlögum. Um er að ræða framlag til reksturs Hreyfingarinnar.

Meirihluti fjárlaganefndar gekk í gærkvöldi frá breytingatillögum við fjárlagafrumvarpið en lokaumræða þess er á dagskrá þingsins í dag.

„Eina breytingatillagan sem fulltrúi Hreyfinginnar lagði fram við fjárlagafrumvarpið þá tvo og hálfan mánuð sem nefndin hafði það til meðferðar var að ríkissjóður styrki Hreyfinguna um 26 milljónir," segir Björn Valur Gíslason, þingmaður Vinstri grænna og varaformaður fjárlaganefndar. „Þau vilja nú fá greitt sem flokkur sem þau segjast þó ekki vera."

Árlega er opinberu fé úthlutað úr ríkissjóði til stjórnmálaflokka sem fengið hafa a.m.k. einn mann kjörinn á Alþingi og þá rennur einnig fé til þingflokka. Greiðslurnar eru aðskildar.

Stjórnmálaflokkur án þingmanna

Borgarahreyfingin fékk fjóra menn kjörna í kosningunum í apríl 2009. Þrír þeirra slitu sig fáeinum mánuðum síðar frá Borgarahreyfingunni og stofnuðu ný stjórnmálasamtök, Hreyfinguna. Sá fjórði, Þráinn Bertelsson, var um tíma óháður en gekk að lokum í VG.

Þrátt fyrir þetta hefur Borgarahreyfingin fengið fjármagn úr ríkissjóði líkt og aðrir stjórnmálaflokkar og fær það áfram út kjörtímabilið. Á sama tíma hefur þingflokkur Hreyfingarinnar fengið framlög úr ríkissjóði, en nú vill Hreyfingin einnig fá styrk sem stjórnmálasamtök.

Leggja fram drög að rekstraráætlun

Í breytingartillögu Hreyfingarinnar segir meðal annars: „Hreyfingin hefur lagt til að stjórnmálasamtökum verði gert óheimilt að taka við fjárframlögum frá lögaðilum. Gæta þurfi jafnræðis í opinberum framlögum og ættu framlög að miðast við þann kostnað sem þarf til reksturs skrifstofu og fundaraðstöðu af hóflegri stærð í hverju kjördæmi."

Með erindinu fylgja tillögur Hreyfingarinnar um fjármál stjórnmálasamtaka og drög að rekstraráætlun fyrir Hreyfinguna fyrir næsta ár.

„Þetta var eina tillagan sem Hreyfingin lagði fram," segir Björn Valur. „Þessu til viðbótar má benda á að hvorki fulltrúar Sjálfstæðisflokks né Framsóknarflokks lögðu fram formlegar breytingatillögur á fjárlagafrumvarpinu til umræðu í fjárlaganefnd þá 74 daga sem nefndin hafði frumvarpið til meðferðar."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×