Innlent

Gerir það gott í Hollywood

Mynd Andreu verður frumsýnd á næstu dögum.
Mynd Andreu verður frumsýnd á næstu dögum.

Nánast önnur hver manneskja í Hollywood er leikari svo lífsbaráttan snýst um að vinna sig áfram og þá gildir dugnaður, ákveðni og vinnusemi," segir Andrea Ösp, sem hefur búið í Los Angeles í þrjú ár.

Þar verður frumsýnd mynd í vikulokin sem hún leikur aðalhlutverk í og nefnist Tell My Heart How. Myndin er eftir Pamelu Wells sem er þekkt fyrir seríuna The Heartbreakers. Hún var sýnd í Cannes í maí á síðasta ári og áform eru um að gera sjónvarpsþætti eftir henni. Þar á Andrea Ösp hlutverk sitt víst.

Andrea Ösp lauk þriggja ára námsefni í leiklist á tveimur árum við American Academy and Dramatic Arts og hlaut gráðuna Associate of Arts ásamt verðlaunum sem besta leikkonan og besti nemandinn. Henni var boðið þriðja árið við skólann, sem einungis 24 nemendur komast inn í, og var þar lögð áhersla á leikhússýningar.

"Meðal leikverka sem ég hef verið í eftir útskrift er Hope sem stýrt var af Broadway-leikstjóranum Joel Bishoff sem er alger snillingur," segir Andrea Ösp sem einnig á nokkrar bíómyndir að baki. Meðal þeirra A Lady When Pressed og Broken Art sem verða sýndar á ýmsum kvikmyndahátíðum í ár og Broken Art er á lista yfir myndir sem valið er úr til tilnefningar til verðlauna fyrir bestu kvenleikstjórn. Tónlistarmyndbönd hafa einnig verið meðal verkefna hennar, þar á meðal eitt sem MTV-verðlaunahafinn Nathan Cox stjórnaði.

Los Angeles er Andreu Ösp að skapi, ekki síst sökum fjölbreytninnar. "Hér er hægt að liggja á ströndinni og fara á snjóbretti sama daginn," segir hún glaðlega.

"Þótt ég og vinkonur mínar tvær sem ég leigi með, vinnum myrkranna á milli reynum við líka að heimsækja ólík hverfi, borgir og strendur og fara í gönguferðir og útilegur í fjöllunum. Ég hef búið á mörgum stöðum utan Íslands en Los Angeles er fyrsti staðurinn sem ég hef fest rætur í. Mig langar að vera hér áfram þó að Ísland sé alltaf "heima".

gun@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×