Fótbolti

Hoffenheim tapaði á heimavelli - Gylfi lék í 45 mínútur

Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar
Gylfi Sigurðsson í leik með Hoffenheim.
Gylfi Sigurðsson í leik með Hoffenheim. Nordic Photos / Getty Images
Gylfi Sigurðsson og félagar hans í þýska liðinu Hoffenheim töpuðu 2-1 á heimavelli gegn Mainz í dag. Gylfi kom inná sem varamaður í upphafi síðari hálfleiks. Mainz komst yfir á 23. mínútu en Hoffenheim jafnaði á 83. mínútu. Sigurmarkið skoruðu gestirnir á 86. mínútu. Hoffenheim er í níunda sæti deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×