Erlent

Tvö írönsk herskip komin inn á Súez skurðinn

Tvö írönsk herskip sigldu inn á Súez skurðinn í morgun á leið sinn til Sýrlands. Írönsk stjórnvöld segja að skipin séu á leið til þjálfunar í Sýrlandi.

Stjórnvöld í Ísrael líta á siglingu skipanna sem ögrun við sig. Talið er að þetta sé í fyrsta sinn frá tíma írönsku byltingarinnar árið 1979 að írönsk herskip sigli um Súez skurðinn.

Yfirvöld í Egyptalandi segja að þau hafi ekki getað bannað siglingu skipanna þar sem stríðsástand ríki ekki við skurðinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×