Erlent

Gaddafi samþykkir sáttaumleitanir

Gaddafi í ham.
Gaddafi í ham.
Leiðtogi Líbíu, Muammar Gaddafi, hefur samþykkt friðaráætlun Hugo Chaves, forseta Venesúela, sem hann hefur lagt fram samkvæmt fréttastöðinni Al Jazeera.

Ekki er vitað í hverju samkomulagið felst. Amr Moussa, framkvæmdastjóri Arababandalagsins, skoðar einnig tilboðið en á fundi bandalagsins var samþykkt að vísa Líbíu úr bandalaginu tímabundið.

Einhverjar fréttastofu hafa greint frá því að Moussa hafi fallist á samkomulagið, en hann bar það sjálfur til baka og sagði það ekki rétt.

Chaves og Gaddafi eru miklir bandamenn en forseti Venesúela hefur áður stutt Gaddafi á Twitter síðu sinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×