Erlent

Hóta að myrða dönsku gíslana

Óli Tynes skrifar
Sómalskir sjóræningjar sem hafa sjö danska gísla á valdi sínu hóta að myrða þá ef reynt verður að frelsa þá með hervaldi. Danskt herskip er á slóðum dönsku seglskútunnar og um borð í því eru liðsmenn úr úrvalssveitum hersins.

Sjóræningjarnir eru að sigla skútunni til hafnarbæjarins Eyl í Sómalíu, en þar eru fyrir flest skipin sem þeir hafa rænt undanfarin misseri. Þau eru yfir þrjátíu talsins og gíslarnir yfir 600. Meðal gíslanna um borð í dönsku skútunni er fimm manna fjölskylda og eru börnin á aldrinum 13 til 17 ára.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×