Erlent

Galliano rekinn frá Dior

John Galliano elskar Hitler.
John Galliano elskar Hitler.
Tískuhönnuðurinn John Galliano hefur verið rekinn frá tískuhúsinu Christian Dior eftir að myndbandsupptaka af hönnuðinum, þar sem hann segist elska Hitler, lak út á netið.

Ummælin hafa vakið gríðarlega hörð viðbrögð en hönnuðurinn var einn af aðalhönnuðum Dior tískuhússins. Talskona Dior er óskarsverðlaunahafinn Natalie Portman.

Hún er sögð vera ein af ástæðunum fyrir því að Galliano var látinn fara, en hún hefur sagt að það komi ekki til greina að vinna með hönnuðinum eftir ummælin umdeildu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×