Körfubolti

Gunnar Einarsson: Nú er þetta orðið karlasport

Elvar Geir Magnússon í Keflavík skrifar
„Þetta sýnir að við erum klárir í úrslitakeppnina og við erum farnir að bíða spenntir eftir henni núna," sagði Gunnar Einarsson, leikmaður Keflavíkur, eftir að liðið vann öruggan sigur á Grindavík í lokaumferð Iceland Express-deildarinnar.

Keflavík vann 86-71 og mætir ÍR í fyrstu umferð úrslitakeppninnar.

„Við börðumst frá fyrstu mínútu og það sást að við vorum klárir í slaginn og gáfum allt í þetta. Við misstum aðeins dampinn undir restina en það er kannski eðlilegt. Þessi leikur var svosem búinn í þriðja leikhluta," sagði Gunnar.

„Við erum bara að einbeita okkur að okkur sjálfum og hvernig við eigum að spila úrslitakeppnina. Þetta er einmitt leiðin. Nú er þetta orðið karlasport, menn þurfa að spila eins og menn og koma klárir í slaginn."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×