Fótbolti

Bayern hefur áhuga á Neuer

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Bongarts
Uli Hoeneß, forseti Bayern München, hefur staðfest að félagið sé nú að leita að markverði og að Manuel Neuer hjá Schalke sé einn þeirra sem komi til greina.

Neuer hefur lengi þótt með betri markvörðum Þýskalands en hann hefur einnig verið sterklega orðaður við Manchester United. Neuer hefur þó sagt að hann vilji vinna titilinn í Þýskalandi áður en hann reynir fyrir sér annars staðar.

„Við höfum ekki samið við neinn enn," sagði Hoeneß. „Það vita allir að við getum ekki gengið frá neinu núna þar sem að markaðurinn er lokaður."

„En við hugsum samt til framtíðar og erum að velta fyrir okkur að kaupa nýjan markvörð. Ég get greint frá því að einn þeirra er Manuel Neuer."

Louis van Gaal mun hætta störfum sem knattspyrnustjóri Bayern í sumar og hefur Jupp Heynckes, núverandi stjóri Leverkusen, verið ráðinn í hans stað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×