Draugaborgin Detroit 23. mars 2011 11:10 MYND/AP
Íbúum bílaborgarinnar Detroit hefur snarfækkað á síðustu tíu árum. Nýjar tölur um íbúafjölda í borginni, sem má muna sinn fífil fegurri þegar bílaiðnaðurinn var í blóma, sýna að íbúum í borginni hefur fækkað um 25 prósent á síðusta áratug. Nú búa rúmlega 700 þúsund manns í borginni og hafa íbúarnir ekki verið færri í heil hundrað ár. Fækkunin á sér engin fordæmi í bandarískri sögu en 237 þúsund manns hafa flúið borgina á tímabilinu og sjást merki þess í galtómum íbúðarhúsum um alla borg. Fækkun hefur raunar verið stöðug, þó ekki hafi hún verið svona skörp, frá sjötta áratugi síðustu aldar. Þá var borgin í sem mestum blóma enda amerískir bílar alls ráðandi á mörkuðum og þegar mest var bjuggu um tvær milljónir manna í Detroit. Nú er staðan sú að um 80 þúsund íbúðir standa tómar, sem er um einn fimmti af öllum húsum borgarinnar. Mesta fækkunin hefur orðið á meðal svartra íbúa borgarinnar en þeir hafa fært sig út í úthverfin sem áður voru byggð hvítum millistjórnendum hjá bílarisunum. Það fólk er hinsvegar löngu farið á aðrar slóðir. Hvítum fækkaði einnig, en smávægileg fjölgun er hjá fólki af latneskum uppruna. Sum hverfi borgarinnar eru í slíkri niðurníðslu að náttúran er að ná yfirhöndinni að nýju og umlykur gróður sum húsin eins og í ævintýrinu um þyrnirós.
Mest lesið Heimilið algjörlega í rúst þegar þau komu heim eftir Þjóðhátíð Innlent Rússar lýsa yfir neyðarástandi Erlent Myndi fara stystu leið upp í sveit Innlent Á hækjum eftir tæklingu í brekkunni á Þjóðhátíð Innlent Ekki góð forgangsröðun að verja fjármunum til efnameiri foreldra Innlent Flugvél með 62 innanborðs brotlenti í Brasilíu Erlent Patrik biðst afsökunar Innlent Aflýsir fundi eftir viðvörun um mögulegan ofurskjálfta Erlent Umdeilt kosningamyndband Höllu „bara í gríni gert“ Innlent Engin fíkniefni reyndust um borð í bátnum Innlent Fleiri fréttir Rússar lýsa yfir neyðarástandi Flugvél með 62 innanborðs brotlenti í Brasilíu Aflýsir fundi eftir viðvörun um mögulegan ofurskjálfta Andmæla ekki notkun vestrænna vopna í áhlaupi á Rússland Þriðja ungmennið handtekið í tengslum við Swift-tónleikana Maduro lokar X í tíu daga Segir Puigdemont flúinn frá Spáni aftur Ísraelar aftur að samningaborðinu í næstu viku Tveir handteknir fyrir að dreifa röngum upplýsingum á netinu Emhoff viðurkennir að hafa haldið framhjá fyrstu eiginkonu sinni Rússar þurfi að finna fyrir stríðinu á eigin skinni Trump vill mæta Harris þrisvar í kappræðum Harris þaggaði niður í stuðningsfólki Palestínumanna Leiðtogi sjálfstæðissinna í felum fyrir katalónsku lögreglunni Fregnir af áhlaupi Úkraínumanna í Rússlandi enn óljósar Ætluðu að drepa eins marga og þeir gætu Átta daga geimferð gæti orðið að átta mánuðum Dæmdur í tíu ára fangelsi fyrir að pynta og misnota hunda Segir réttlætanlegt og siðferðilega verjandi að svelta íbúa Gasa Er óviss um friðsamleg forsetaskipti ef Trump tapar Þúsundir gagn-mótmælenda kæfðu boðaðar óeirðir Tónleikum Taylor Swift frestað: „Best að þessu sé slaufað þó að það sé rosalega sárt“ Stjúpsonur norska prinsins handtekinn um helgina Dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi og brottvísað fyrir árásina á Mette Mikill viðbúnaður vegna mögulegra óeirða í dag Höfuðpaurinn á bakvið árásirnar á Ísrael nýr pólitískur leiðtogi Hamas Walz hjólaði í Trump og Vance á fyrsta kosningafundinum í gær Walz sniðugur veiðimaður sem höfði til karla á miðjum aldri Harris velur ríkisstjóra Minnesota sem varaforsetaefni Slítur þingi eftir að forsætisráðherrann flúði Sjá meira