Erlent

Obama útilokar ekki að uppreisnarmenn fái vopn

MYND/AP
Barack Obama segist ekki útiloka það að Bandaríkjamenn muni leggja uppreisnarmönnum í Líbíu til vopn en slær því þó ekki föstu. Hann segir að sífellt styttist í endalok Gaddafís.

En þrátt fyrir yfirlýsingar forsetans um þverrandi mátt Gaddafís benda nýjustu fréttir af vígstöðvunum til þess að herir hans hafi hrakið uppreisnarmenn í austurátt, í átt frá höfuðborginni Trípólí sem er helsta vígi einræðisherrrans. Nú er barist austan við hafnarbæinn Ras Lanuf.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×