Enski boltinn

Spurs til í að greiða 30 milljónir punda fyrir Cavani

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Edinson Cavani.
Edinson Cavani.
Tottenham er sagt ætla að opna veskið í sumar og kaupa framherjann Edinson Cavani frá Napoli. Forráðamenn Spurs láta það hræða sig þó Napoli vilji fá 80 milljónir punda fyrir markamaskínuna.

Úrúgvæinn marksækni hefur skorað 25 mörk í vetur og á stóran þátt í góðu gengi Napoli í ítalska boltanum í vetur.

Spurs er sagt vera til í að greiða 30 milljónir punda fyrir leikmann sem er 24 ára.

Lundúnaliðið er þó ekki eina félagið sem hefur áhuga því Man. City er einnig sagt vera áhugasamt um leikmanninn.

Framherjar Spurs hafa ekki verið upp á sitt besta í vetur og þeir Peter Crouch, Jermain Defoe og Roman Pavlyuchenko hafa aðeins skorað 13 mörk í deildinni í vetur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×