Enski boltinn

Milner reifst við umboðsmann Rooney

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
James Milner.
James Milner.
James Milner, vængmaður Man. City, lenti í heiftarlegu rifrildi við Paul Stretford, umboðsmann Wayne Rooney, í þrítugsafmæli Gareth Barry á dögunum.

Unnustur þeirra lentu í rifrildi í veislunni og Stretford fór að skipta sér af. Það kunni Milner ekki að meta og hellti sér yfir Stretford sem svaraði fullum hálsi.

Þeir gerðu út um málin í símtali daginn eftir.

Stretford var boðið í veisluna þar sem börn hans og Barrys ganga í sama leikskóla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×