Enski boltinn

Gerrard verður ekki meira með á þessari leiktíð

Stefán Árni Pálsson skrifar
Gerrard verður ekki meira með Liverpool á þessari leiktíð. Mynd/Getty
Gerrard verður ekki meira með Liverpool á þessari leiktíð. Mynd/Getty
Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, þurfti að fara í aðra aðgerð á nára fyrir stuttu, en hann hefur verið að glíma við nárameiðslin í töluverðan tíma.

Gerrard mun ekki leika með Liverpool það sem eftir er af þessu tímabili og mun þetta vera mikið áfall fyrir liðið.

Í yfirlýsingu frá félaginu kemur fram að þessi ákvörðun hafi verið tekin í samráði við sérfræðinga liðsins.

Fram kemur á vef félagsins að Gerrard muni nú byrja í endurhæfingu og ætti að verða klár fyrir undirbúningstímabilið í sumar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×