Erlent

Brúðhjón dönsuðu fram á nótt

Katrín og William kysstust á svölunum í gær.
Katrín og William kysstust á svölunum í gær.
Vilhjálmur prins og Katrín Middleton fögnuðu brúðkaupsdegi sínum ásamt um þrjúhundruð vinum og vandamönnum í veglegri veislu Buckingham höll í gærkvöldi.

Þar var dansað fram eftir nóttu. Bróðir brúðgumans, Harry prins, ávarpaði brúðhjónin sem og faðir brúðarinnar Michael Middleton.

Brúðurin klæddist hvítum kvöldkjól eftir hönnuðinn Söruh Burton sem einnig hannaði brúðarkjólinn margumtalaða.

Hjónin gistu í höllinni eftir veisluna. Talið er að þau muni leggja af stað í brúðkaupsferð sína í dag en engar opinberar upplýsingar hafa verið veittar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×