Uppbygging í Garði: Nýtt íslenskt barnamauk Erla Hlynsdóttir skrifar 5. maí 2011 09:31 Íslenskir foreldrar hafa fleiri valkosti en áður þegar kemur að því að kaupa mauk handa börnunum sínum. Mynd: Barnavagninn
Þrjú ný störf hafa orðið til í Garði á Suðurnesjum vegna tilkomu fyrirtækisins Barnavagninn, sem framleiðir grænmetis- og ávaxtamauk fyrir ungbörn. Barnavagninn er rekið af sömu aðilum og eiga Ávaxtabílinn. Auk þess er Eignarhaldsfélag Suðurnesja hluthafi í fyrirtækinu og lagði því til stofnfé. Öll framleiðsla fer fram í Garði á Suðurnesjum. „Þetta svæði hefur orðið heldur illa úti þegar kemur að atvinnuleysi og okkur finnst því jákvætt að hafa getað sett framleiðsluna upp þarna," segir Haukur Magnússon framkvæmdastjóri. Haukur og fjölskylda hans eru eigendur fyrirtækisins, auk Eignarhaldsfélags Suðurnesja en þátttaka eignarhaldsfélagsins er liður í atvinnuuppbyggingu á Suðurnesjum.Barnavagninn framleiðir sex tegundir af maukiAuk þeirra starfa sem urðu til við framleiðsluna var leitað var til iðnaðarmanna á svæðinu við uppbygginguna. Í Garðinum búa um 1500 manns. Barnavagninn framleiðir sex tegundir af mauki fyrir börn úr grænmeti og ávöxtum. Grænmetið kemur frá íslenskum garðyrkjubændum en ávextirnir innfluttir. Um er að ræða mauk úr gulrótum, rófum, eplum, sveskjum auk tveggja tegunda af blönduðu mauki. Haukur segir hugmyndina að barnamaukinu hafa lengi legið í loftinu enda hafa eigendurnir lengi einbeitt sér að hollustuvörum með starfsemi Ávaxtabílsins. Hann segir mikla þróunarvinnu liggja að baki og áhersla lögð á að næringargildið haldi sér sem allra best. Engin óæskileg aukaefni eru í maukinu en eplasýru hefur verið bætt í nokkrar tegundirnar til að stilla sýrustig vörunnar. Þess utan er um hreint mauk að ræða. Þetta er í fyrsta skipti sem ferskt og ófrosið mauk fyrir börn er sett á markað hér á landi.Húsnæði fyrirtækisins í GarðinumHaukur segist hafa tekið eftir aukinni áherslu foreldra á að gefa ungbörnum ferskt mauk. Þeir sem hingað til hafa gefið börnunum niðursoðið mauk frá erlendum aðilum hafi nú íslenskan valkost. Auk þess sem þeir foreldrar sem mauka sjálfir barnamatinn geta fengið kærkomið frí frá þeirri eldamennsku. Vörur Barnavagnsins fást í verslunum Hagkaups, Bónuss, Krónunnar og Nóatúns.Facebook-síðu Barnavagnsins má finna hér. Mikil gróska virðist vera í þessum geira því í kring um áramótin setti fyrirtækið Kátir kroppar grænmetismauk fyrir börn á markað, og var það í fyrsta sinn sem íslenskir neytendur gátu keypt slíka vöru. Kátir kroppar framleiða fjórar tegundir af mauki sem er selt frosið í Fjarðarkaupum, Melabúðinni, Fjallkonubakaríinu og á Hamborgarafabrikkunni.
Mest lesið „Ekki skemmtilegt að koma svona til baka fyrsta vinnudag eftir sumarfrí“ Innlent Ferðamennirnir ófundnir Innlent Fundu tóman bílaleigubíl og ræsa út leitarhunda Innlent Sendu skilaboð á Neyðarlínuna en enginn fundist á svæðinu Innlent Margir urðu brekkunni að bráð Innlent Ríkið komið um borð í milljarðaverkefni í Eyjafirði Innlent Harris orðin frambjóðandi demókrata og kynnir varaforsetaefni sitt Erlent Óvíst hvort ferðamennirnir séu á yfirgefna bílaleigubílnum Innlent Leitarsvæðið torsótt og erfitt yfirferðar Innlent Hörður Torfason biður Samtökin 78 afsökunar Innlent Fleiri fréttir Telja bílinn ekki á vegum ferðamannanna Maður grunaður um tilefnislausa stunguárás í varðhaldi síðan í janúar Hörður Torfason biður Samtökin 78 afsökunar Óvíst hvort ferðamennirnir séu á yfirgefna bílaleigubílnum Nýrnaveiki staðfest í sjókví í Arnarfirði Leitarsvæðið torsótt og erfitt yfirferðar Fórnarlamb stunguárásar útskrifað af sjúkrahúsi Fundu tóman bílaleigubíl og ræsa út leitarhunda Ríkið komið um borð í milljarðaverkefni í Eyjafirði Víkka út leitarsvæðið án nokkurra nýrra vísbendinga Margir urðu brekkunni að bráð Skjálftavirkni meiri en landris hægara Leitað að ferðamönnum í Kerlingarfjöllum „Ekki skemmtilegt að koma svona til baka fyrsta vinnudag eftir sumarfrí“ Sendu skilaboð á Neyðarlínuna en enginn fundist á svæðinu Handleggsbrotnum bjargað af Baulu Ferðamennirnir ófundnir Björgunarsveitir sækja slasaðan ferðamann á Baulu Útkall vegna ferðamanna sem segjast lokaðir inni í helli Fundinn heill á húfi „Brá verulega að heyra að fangaverðir hefðu slasast“ Dómsmálaráðherra brugðið og umferðin eftir Verslunarmannahelgi Öflugar gufusprengingar hafi orðið í Hveradölum Eyðilögðum tjöldum pakkað saman á gervigrasinu Ekið á búfé og keyrt ofan í læk Helgin fór prýðilega fram í Eyjum Óánægja með ætlað niðurrif á sögulegu húsi á Húsavík Fimm hundruð í Herjólfshöll í nótt og óöld í Bangladess Starbucks kemur ekki til Íslands Ofurölvi vistaður í fangaklefa Sjá meira