Tapar á hækkun tekjutengingar vaxtabóta LPA skrifar 4. maí 2011 18:37 Konan segist hafa tapað á ákvörðun ríkisstjórnarinnar.
Reykvísk kona sem skuldar húsnæðislán segist hafa tapað á þeirri ákvörðun stjórnvalda að hækka tekjutengingu vaxtabóta - en bæta tímabundið við vaxtaniðurgreiðslu. Munurinn slagar upp í sólarlandaferð fyrir einn. Hún telur aðgerðina brjóta gegn eignarréttarákvæði stjórnarskrárinnar og hefur kvartað til Umboðsmanns Alþingis. Tæpur helmingur, eða 46%, heimila landsins fékk vaxtaniðurgreiðslu um mánaðamótin. Alls tæplega 97 þúsund einstaklingar. Margir hafa eflaust fagnað þessari greiðslu - sem er eitt af þeim úrræðum sem ríkisstjórnin kynnti í lokasvari sínu til skuldugra heimila í desember. Niðurgreiðslan er tímabundin. Ekki urðu þó allir kátir. Einn þeirra er kona sem kveðst hafa greitt í fyrra 930 þúsund krónur í vexti af láni sem hvílir á heimili þeirra hjóna. Hún er ósátt, og hefur kvartað til Umboðsmanns Alþingis, vegna þess að samhliða hinni nýju vaxtaniðurgreiðslu var tekjutenging gömlu vaxtabótanna hækkuð milli jóla og nýárs og tók gildi nokkrum dögum síðar. Það þýðir fyrir þessi hjón að í stað þess að fá 217 þúsund krónur í vaxtabætur, eins og þau hefðu fengið ef engu hefði verið breytt, fá þau nú 20 þúsund í vaxtabætur og 116 þús. krónur í vaxtaniðurgreiðslur á árinu, samanlagt 136 þúsund krónur. Munurinn er 83 þúsund krónur - sem slagar upp í 10 daga sólarlandaferð fyrir einn. Konan, sem er lögfræðingur, segir ekkert athugavert við að hækka tekjutengingu vaxtabóta - hins vegar megi ekki hringla með slíkar bætur afturvirkt. Hún rökstyður kvörtun sína til umboðsmanns með því að vaxtabætur séu eign sem myndist jafnt og þétt yfir skattaárið 2010 til greiðslu á þessu ári. Með því að breyta lögum í lok desember og hækka tekjutenginguna strax í upphafi árs séu stjórnvöld því að brjóta eignaréttarákvæði stjórnarskrár. Ekki hefur borist formlegt svar frá Umboðsmanni - en konan telur þessa aðgerð ekki í samræmi við loforð ríkisstjórnar um að aðstoða skuldug heimili, hún hafi búist við meiri hjálp en ekki minni.
Mest lesið „Ekki skemmtilegt að koma svona til baka fyrsta vinnudag eftir sumarfrí“ Innlent Ferðamennirnir ófundnir Innlent Fundu tóman bílaleigubíl og ræsa út leitarhunda Innlent Sendu skilaboð á Neyðarlínuna en enginn fundist á svæðinu Innlent Margir urðu brekkunni að bráð Innlent Ríkið komið um borð í milljarðaverkefni í Eyjafirði Innlent Harris orðin frambjóðandi demókrata og kynnir varaforsetaefni sitt Erlent Óvíst hvort ferðamennirnir séu á yfirgefna bílaleigubílnum Innlent Leitarsvæðið torsótt og erfitt yfirferðar Innlent Hörður Torfason biður Samtökin 78 afsökunar Innlent Fleiri fréttir Telja bílinn ekki á vegum ferðamannanna Maður grunaður um tilefnislausa stunguárás í varðhaldi síðan í janúar Hörður Torfason biður Samtökin 78 afsökunar Óvíst hvort ferðamennirnir séu á yfirgefna bílaleigubílnum Nýrnaveiki staðfest í sjókví í Arnarfirði Leitarsvæðið torsótt og erfitt yfirferðar Fórnarlamb stunguárásar útskrifað af sjúkrahúsi Fundu tóman bílaleigubíl og ræsa út leitarhunda Ríkið komið um borð í milljarðaverkefni í Eyjafirði Víkka út leitarsvæðið án nokkurra nýrra vísbendinga Margir urðu brekkunni að bráð Skjálftavirkni meiri en landris hægara Leitað að ferðamönnum í Kerlingarfjöllum „Ekki skemmtilegt að koma svona til baka fyrsta vinnudag eftir sumarfrí“ Sendu skilaboð á Neyðarlínuna en enginn fundist á svæðinu Handleggsbrotnum bjargað af Baulu Ferðamennirnir ófundnir Björgunarsveitir sækja slasaðan ferðamann á Baulu Útkall vegna ferðamanna sem segjast lokaðir inni í helli Fundinn heill á húfi „Brá verulega að heyra að fangaverðir hefðu slasast“ Dómsmálaráðherra brugðið og umferðin eftir Verslunarmannahelgi Öflugar gufusprengingar hafi orðið í Hveradölum Eyðilögðum tjöldum pakkað saman á gervigrasinu Ekið á búfé og keyrt ofan í læk Helgin fór prýðilega fram í Eyjum Óánægja með ætlað niðurrif á sögulegu húsi á Húsavík Fimm hundruð í Herjólfshöll í nótt og óöld í Bangladess Starbucks kemur ekki til Íslands Ofurölvi vistaður í fangaklefa Sjá meira