Innlent

Í gæsluvarðhaldi grunaður um tvær nauðganir

Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir manni sem grunaður er um tvær nauðganir með um mánaðar millibili. Fyrri nauðgunin átti sér stað aðfararnótt föstudagsins langa en þá er hann sagður hafa neytt stúlku til þess að hafa samfarir við sig og félaga sinn. Hinn maðurinn var þessu mótfallinn en maðurinn skipaði honum að taka þátt og hótaði hann báðum barsmíðum ef þau létu ekki að óskum hans.

Við yfirheyrslur viðurkennir maðurinn að hafa haft samfarir við stúlkuna en segir þær hafa verið með samþykki allra. Vitnisburður stúlkunnar og hins mannsins þykir hinsvegar renna stoðum undir að um nauðgun hafi verið að ræða.

Fjórum dögum síðar er maðurinn sakaður um að hafa brotið gegn annarri stúlku á dvalarstað sínum í Reykjavík. Þau hafi áður verið í samskiptum á Facebook en ákveðið að hittast umrætt kvöld.

Stúlkan hafi í byrjun verið samþykk samræði en þegar leið á hafi maðurinn orðið mjög ógnandi og fór að beita hana ofbeldi. Aftur viðurkennir hann við yfirheyrslur að hafa haft samræði við stúlkuna en fullyrðir um leið að það hafi verið með hennar samþykki. Afbrotin sem maðurinn er grunaður um nema hvert um sig allt að 16 ára fangelsi og skal hann skal sæta gæsluvarðhalds til 27. maí.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×