Innlent

Kallaði á lögreglu vegna flakkara

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Flakkarinn var fundinn þegar lögregla kom á staðinn.
Flakkarinn var fundinn þegar lögregla kom á staðinn.
Lögreglan var kölluð að húsi á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöld eftir að tilkynning barst um innbrot. Á vettvangi voru engin sjáanleg merki um innbrot en tilkynnandi, sem jafnframt var húsráðandi, var þó viss í sinni sök þegar hann tilkynnti um glæpinn. Málavextir voru þeir að einhver hafði stolið svokölluðum flakkara úr íbúðinni. Tækið var hinsvegar fundið þegar lögreglan kom á staðinn og reyndist ekki hafa verið stolið því það fannst í stofusófanum á heimilinu.

Lögreglan segir að húsráðandi hafi verið í miður góðu ástandi. Hann hafi gleymt að leita af sér allan grun áður en hann óskaði eftir lögregluaðstoð. Lögreglan áréttar samt að það sé betra að hringja einu sinni of oft í lögregluna en einu sinni of sjaldan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×