Innlent

Forseti Slóveníu í opinberri heimsókn

Dr. Danilo Türk.
Dr. Danilo Türk.
Opinber heimsókn forseta Slóveníu hingað til lands hefst í dag á Bessastöðum. Forsetinn, Dr. Danilo Türk og eiginkona hans, frú Barbara Miklič Türk hitta þar Ólaf Ragnar Grímsson forseta Íslands. Með í för eru þrír ráðherrar í ríkisstjórn Slóveníu auk embættismanna.

Þá fylgja forseta Slóveníu viðskiptasendinefnd, með fulltrúum ríflega 20 slóvenskra fyrirtækja, og blaðamenn. Heimsóknin stendur í tvo daga og verða forsetahjónin meðal annars viðstödd opnunartónleika Hörpu á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×