Innlent

Meira brottfall hjá körlum

Nemendur í prófi
Nemendur í prófi Mynd: GVA
Karlar hætta frekar í námi á framhaldsskólastigi en konur.  Haustið 2002 voru 3.982 nýnemar í dagskóla á framhaldsskólastigi á Íslandi. Fjórum árum eftir innritun höfðu 51% kvenna og 38% karla verið brautskráð. Bilið á milli karla og kvenna hélst svo til óbreytt þegar hópurinn var skoðaður sex og sjö árum frá upphafi náms. Karlar voru fleiri í hópi brottfallinna fjórum árum frá upphafi náms, 35% á móti 23% kvenna.

Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar.

Þá er þar brautskráning nema í heild sinni skoðuð hjá þessum sama hópi sem hóf nám 2002. Fjórum árum síðar höfðu 45% nýnemanna verið brautskráðir úr námi á framhaldsskólastigi sem var að minnsta kosti tvö ár að lengd. Um 29% nýnemanna höfðu þá hætt námi eða tekið sér tímabundið hlé án þess að vera brautskráðir en 26% voru enn í námi án þess að hafa brautskráðst.

Þette kemur fram á vef Hagstofunnar.

Árið 2008, sex árum frá upphafi náms, höfðu 58% nýnemanna verið brautskráðir, 29% nýnemanna höfðu hætt námi eða tekið hlé frá námi án þess að vera brautskráðir en 13% voru enn í námi. Árið 2009, sjö árum eftir upphaf náms, hafði hlutfall brautskráðra hækkað í 61% en 28% voru brottfallnir. Það er athyglisvert að stærð þess hóps sem hér er skilgreindur sem brottfallinn úr námi minnkaði aðeins um eitt prósentustig þótt svigrúm til að ljúka námi hafi aukist úr fjórum árum í sjö. Hlutfall þeirra sem voru brautskráðir óx úr 45% í 61% og hlutfall þeirra sem voru enn í námi minnkaði að sama skapi.

Um 43% nemenda í bóknámi höfðu verið brautskráðir fjórum árum eftir upphaf náms en 49% nemenda í starfsnámi. Hærra hlutfall brautskráðra í starfsnámi skýrist m.a. af því að í starfsnámi er hægt að ljúka námi eftir tvö eða þrjú ár en fjögur ár þarf til að ljúka flestum bóknámsbrautum. Þannig hafði fjöldi nemenda lokið tveggja ára verslunar- og viðskiptabrautum sem teljast til starfsnámsbrauta. Sjö árum frá upphafi náms höfðu 61% nemenda í bóknámi verið brautskráðir og sömuleiðis 61% nemenda í starfsnámi.

Algengt er að nemendur skipti um námsleið í framhaldsskólum. Þannig höfðu 29% nemenda sem innrituðust í starfsnám haustið 2002 lokið bóknámi fjórum árum síðar. Þá höfðu tæp 7% allra nýnema bæði verið brautskráðir úr starfsnámi og bóknámi fjórum árum frá upphafi náms.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×