Erlent

Lindsey Lohan aftur dæmd í fangelsi

Leikkonan unga Lindsay Lohan var í gær dæmd í 120 daga fangelsi fyrir að stela gullhálsfesti. Stjarnan, sem býr í Kalíforníu, þarf þó væntanlega ekki að afplána dóminn í einum af hinum alræmdu fangelsum ríkisins heldur gefst henni kostur á að vera í stofufangelsi heima hjá sér.

Ástæðan fyrir því eru yfirfull fangelsin í ríkinu, vandamál sem er víðar en hér á landi. Lindsay, sem marga fjöruna hefur sopið í einkalífinu, játaði brot sitt og setti dómarinn hana á þriggja ára skilorð auk þess sem hún þarf að mæta á meðferðarnámskeið fyrir stelsjúka.

Lohan hefur áður verið dæmd til 120 daga fangelsisvistar. Það var árið 2007 þegar hún ók bíl undir áhrifum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×