Handbolti

Ágúst: Hundfúlt að tapa þessum leik

Stefán Árni Pálsson skrifar
„Ég er bara hundfúll að hafa ekki náð að vinna þennan leik,“ sagði Ágúst Jóhannsson, þjálfari Íslands, eftir tapið í dag.

„Leikurinn var jafn nánast allan tíman, en um miðbik síðari hálfleiksins náðum við að komast yfir og áttum fínan möguleik á því að vinna leikinn. Stelpurnar gerðu sig seka um of mikið af tæknimistökum og þær hefðu átt að skjóta betur á markið á köflum, en það erfitt á móti jafn góðu liði og Svíþjóð".

„Við hefðum þurft að fá mun fleiri hraðaupphlaupsmörk hér í dag.Varnarleikurinn hjá okkur var heilt yfir mjög góður og sóknarlega var liðið að sýna nokkuð fína takta. Það er gríðarlega mikilvægt að fá þessa leiki á móti Svíþjóð fyrir liðið, en þær urðu í öðru sæti á síðasta Evrópumóti og eru með virkilega gott lið,“ sagði Ágúst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×