Sólin skín hjá sérstökum saksóknara Valur Grettisson skrifar 2. júní 2011 11:22 Glitnir vill átta milljarða frá Sólinni sem skín. Málið er komið inn á borð til sérstaks saksóknara.
Skiptastjóri eignarhaldsfélagsins Sólin skín ehf., Páll Kristjánsson, hefur vakið athygli sérstaks saksóknara á starfsemi félagsins og sent gögn þar af lútandi til embættisins. „Mér fannst það rétt með tilliti til þessara háu krafna sem töpuðust," segir Páll og bætir við: „En ég tek enga sérstaka afstöðu til sektar þeirra." Baugur Group og þrotabú Glitnis gera samtals 11 milljarða króna kröfu í félagið sem er gjaldþrota og fullkomlega eignalaust. Félagið var í eigu Baugs, Fons, Glitnis og Kevins Stanfords. Baugur Group lánaði fyrirtækinu þrjá milljarða króna án nokkurra trygginga á sínum tíma. Sólin skín var svo úrskurðað gjaldþrota í lok árs 2009. Tilgangur félagsins var að fjárfesta í hlutabréfum í bresku verslanakeðjunni Marks og Spencer. Forsvarsmaður félagsins var Stefán H. Hilmarsson, endurskoðandi en hann starfaði sem fjármálastjóri Baugs Group um árabil og er núverandi fjármálastjóri 365 miðla. Hann var úrskurðaður gjaldþrota í júlí á síðasta ári eins og fram hefur komið í fjölmiðlum. Fréttastofa Stöðvar 2 greindi frá háum kröfum í félagið Sólin skín snemma á síðasta ári. Þá sagði Stefán að kröfur Glitnis hefðu eingöngu verið vegna framvirkra hlutabréfaviðskipta. Stefán sagði einnig að Glitnir banki hefði gert veðkall á félagið rétt fyrir bankahrunið haustið 2008 og í kjölfarið selt hlutabréfin í Marks og Spencer.
Mest lesið Aðstoðarforstjóri Play hættur Viðskipti innlent Nýjustu vísbendingar bendi til komandi kólnunar Viðskipti innlent Terra Einingar kaupir Öryggisgirðingar Viðskipti innlent Dæmi um fimmtíu prósenta hækkun á matvöru Neytendur Rukkaður um 2800 króna aukagjald í Reynisfjöru Neytendur Ofuráhersla á umhverfismálin þegar sjálfbærnin snýst í raun um fólk Atvinnulíf Gapandi hissa að sjá túrista skipta á milli sín mat: „Ég sárlega vorkenndi þeim“ Neytendur Tælenskt hveiti úr umferð Neytendur Hugmyndir fyrir tómlega vinnustaði og leiðinlega vinnudaga Atvinnulíf „Við erum ekki að fara að vinna“ Neytendur Fleiri fréttir Nýjustu vísbendingar bendi til komandi kólnunar Aðstoðarforstjóri Play hættur Terra Einingar kaupir Öryggisgirðingar Hagnaður Arion banka dregst saman milli ára Play tapaði milljarði en staðan „mjög traust“ að mati forstjórans Bein útsending: Play kynnir uppgjör Barátta Seðlabankans löngu töpuð Formaðurinn neiti að horfast í augu við einkunnaverðbólgu Gústi Jó ráðinn markaðsstjóri Vöruverndar Verðbólgutölur minnki líkur á vaxtalækkun „allverulega“ Þekkja engin dæmi um að lögheimilisskráning stöðvi fasteignasölu Eyþór fyllir í skarð Rósu hjá Heimum Verðbólga eykst milli mánaða Stýrivextir mögulega ekki lækkaðir fyrr en í febrúar „Ljóst að staðan er mjög strembin“ Móðurfélag Össurar hagnaðist um 2,8 milljarða á metfjórðungi Fækkun ferðamanna gæti komið íbúðum á markað Fækkun ferðamanna mögulega leitt til hraðari lækkunar stýrivaxta Fá hundrað milljónir til að þróa gervigreind Styrkás kaupir Kraft Landsliðskokkur kaupir hverfisstaðinn: „Þetta gerðist í rauninni bara mjög hratt“ KFC á Íslandi segir meinta ljósmynd viðskiptavinar „falska“ Komust ekki inn á netbanka vegna bilunar Titringur á bókunarmarkaði: „Í kjörstöðu til að taka yfir þennan markað“ Landsbankinn hagnaðist um 16 milljarða eftir skatt Víkingur skiptir um hlutverk hjá Öskju Einar Hrafn ráðinn markaðsstjóri 1,4 milljarða sparnaður af uppsögnum 140 starfsmanna í maí og júní „Sérkennileg“ hækkun íbúðaverðs á tímum hárra vaxta Leiguverð heldur áfram að hækka Sjá meira