Erlent

Bachmann lýsir yfir framboði

MYND/AP
Michele Bachmann, öldungardeildarþingkona frá Minnesota lýsti í dag yfir framboði til forvals repúblikana fyrir komandi forsetakosningar í Bandaríkjunum. Bachmann er vinsæl innan teboðshreyfingarinnar svokölluðu, sem eru íhaldssamir repúblikanar en hún tilkynnti um framboð sitt í Iowa hvaðan hún er ættuð.

Skoðanakannanir í Iowa sýna að Bachmann er vinsæl þar um slóðir og mælist hún á pari við Mitt Romney, sem talinn er sigurstranglegastur í forvalinu.

Stjórnmálaskýrendur vestra hafa líkt Bachmann við Söru Palin og er hún sögð búin flestum kostum hennar án þess að gallarnir fylgi með.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×