Erlent

Gifti sig 99 ára gamall

Mynd úr safni
Gilbert Herrick sagðist aldrei ætla að gifta sig fyrr en hann myndi hitta hina einu réttu. Hann hitti svo konuna í lífi sínu - þegar hann var orðinn 98 ára.

Þann 6. júní síðastliðinn giftist Gilbert svo konunni í lífi sínu, Virginu Hartman, og þá orðinn 99 ára gamall. Konan er ekkja sem hefur alið upp fimm börn og er 86 ára gömul en hjónin kynntust á elliheimili í Rochester í New York þar sem þau búa bæði.

Eftir að hann sá hana fyrst áttaði hann sig á því að Hartman væri rétta konan og byrjaði að heimsækja hana í íbúð hennar daglega.

Þau vildu byrja að búa saman en samkvæmt reglum elliheimilisins er fólki ekki leyft að búa saman nema þau séu gift.

Og viti menn, það gerðu þau og búa nú saman á elliheimilinu og eru ástfangin upp fyrir haus.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×