Erlent

„Apinn“ handtekinn í Mexíkó

Lögreglan í Mexíkó hefur handtekið Jose Mendes Vargar, sem gengur undir nafninu "apinn" í undirheimum Mexíkó. Apinn er leiðtogi einnar valdamestu eiturlyfjaklíku landsins, Fjölskyldunni, eða "La Familia". Forseti Mexíkó óskaði lögreglunni til hamingju með árangurinn í gærkvöldi og sagði að handtakan væri þungt högg fyrir skipulagða glæpastarfsemi í landinu. Tvær og hálf milljón bandaríkjadala höfðu verið settar til höfuðs Apanum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×