Innlent

Innanríkisráðherra á leið á hamfarasvæðin

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Ögmundur Jónasson er á leið austur fyrir fjall til að virða fyrir sér aðstæður. Mynd/ Stefán.
Ögmundur Jónasson er á leið austur fyrir fjall til að virða fyrir sér aðstæður. Mynd/ Stefán.
„Það verður allt gert sem hægt er til að koma á vegasambandi," segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra. Samgöngumál falla undir ráðuneyti hans. Hlaupið í Múlakvísl olli því að brú yfir ána rifnaði í sundur í morgun.

Ögmundur segir að jafnvel þó að hamfarirnar í Mýrdalsjökli verði ekki meira en orðið er, sé alveg ljóst að þær hafi strax mikil áhrif á samfélagið. „Ekki síst ferðaþjónustuna. Þannig að það eru allir á tánum að gera það sem þeir geta til að laga það sem úrskeiðis hefur farið," segir Ögmundur. 

Ögmundur gerir ráð fyrir að bráðabirgðabrú verði sett upp til þess að koma vegasambandi á sem fyrst og allir helstu sérfræðingar Vegagerðarinnar séu að skoða það mál núna. „Við erum á leiðinni austur til þess að komast í enn betri snertingu við þessa vinnu,“ segir Ögmundur. 


Tengdar fréttir

Saga Kötlu

Katla er eitt hættulegasta eldfjall landsins og hafa hlaup úr Kötlu valdið gríðarlegu tjóni á Suðurlandi. Talið er að Katla hafi gosið um tuttugu sinnum frá landnámi en síðasta stóra gos í Kötlu varð árið 1918. Mesta hættan af Kötlugosunum liggur í jökulhlaupum.

Sigkatlar benda til að lítið gos sé hafið

Sigkatlar hafa myndast sem gæti verið í samræmi við það að lítið gos sé hafið sem ekki er komið upp á yfirborðið, segir Sigurlaug Hjaltadóttir, jarðskjálftafræðingur á Veðurstofunni. Sigurlaug hefur þetta eftir stýrimanni á þyrlu Landhelgisgæslunnar. Þyrlan flaug yfir Mýrdalsjökul snemma í morgun. Þá sáust sigkatlarnir, en enginn gosmökkur sást.

Fólk safnast saman í fjöldarhjálpastöðvum

Þegar eru komnir 30 manns í fjöldahjálpastöðina á Kirkjubæjarklaustri, segir Elín Valdimarsdóttir, einn fulltrúa Rauða krossins þar. Fjöldahjálparstöðvar voru opnaðar í grunnskólanum á Kirkjubæjarklaustri og í Grunnskólanum í Vík vegna hlaupsins í Múlakvísl og þess goss sem virðist vera hafið í Kötlu.

Kötlugos hugsanlega hafið

Ef þetta er gos að þá er um að ræða lítið Kötlugos, segir Sigurlaug Hjaltadóttir, sérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands. Gosórói hefur mælst í Kötlu á mælum Veðurstofunnar. Sigurlaug segist vera að bíða eftir upplýsingum frá sérfræðingi sem hún sendi með þyrlu Landhelgisgæslunnar fyrr í morgun til þess að kanna aðstæður.

Suðurlandsvegur enn lokaður

Suðurlandsvegi hefur verið lokað í báðar áttir við Vík og austan við Skálm vegna hlaups í Múlakvísl og mögulegs goss í Kötlu. Engar hjáleiðir eru mögulegar, nema Fjallabaksleið, að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli.

Hlaup í Múlakvísl - myndir

Enn og aftur létu náttúruöflin finna fyrir sér í nótt þegar hlaup hófst í Múlakvísl. Í morgun bárust svo fréttir af því að líklegast væri hafið gos í Kötlu. Meðfylgjandi myndir tók Þórir N. Kjartansson af hlaupinu klukkan átta í morgun. Smelltu á myndasafn hér að neðan til að skoða myndirnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×