Innlent

Ætla að fljúga aukaflug frá Höfn til Reykjavíkur

Flugfélagið Ernir ætlar að fljúga aukaflug á Höfn í Hornafirði vegna lokunar hringvegar. Farið verður frá Reykjavík kl 13:00 og frá Höfn kl 14:15. Farþegar sem ekki komast leiðar sinnar vegna lokunarinnar og fyrirhugaðs elgoss er bent á að hringja í Flugfélagið Ernir í síma 562-2640 til að athuga með flug, segir í tilkynningu frá flugfélaginu. Einnig er hugsanlegt að sett verði upp annað flug í framhaldi ef mikil eftirspurn myndast og því gott fyrir farþega að hafa samband sem allra fyrst.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×