Innlent

Ók á rútu og bakkaði á löggubíl

Ölvaður ökumaður ók utan í hópferðabíl á Sæbraut, á móts við Kringlumýrarbraut í gærkvöldi og hélt för sinni áfram. Skömmu síðar gáfu lögreglumenn á bíl honum stöðvunarmerki á Skúlagötu og brást hann við með því að snar stoppa bílinn, reka hann í bakkgír og bakka framan á lögreglubílinn.

Annar lögreglumannanna hljóp þá út úr bíl sínum og náði að teygja sig inn í bíl mannsins og drepa á honum of hrifsa til sín lyklana. Engan sakaði við þetta og var maðurinn vistaður í fangageymslum í nótt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×