Erlent

197 látnir í eldsvoða á sjó

Mynd úr safni
Mynd úr safni Mynd/AP
Nærri 200 manns létu lífið í dag þegar eldur kviknaði um borð í bát sem flutti ólöglega innflytjendur frá Súdan til Sádí Arabíu. Fyrstu fregnir herma að aðeins þrír bátsfarþegar hafi komist lífs af, en enn er leitað af eftirlifendum.

Fjórir menn frá Jemen hafa verið handteknir, en talið er að þeir séu eigendur bátsins, sem silgdi undir kúbönskum fána.

Annar bátur var stöðvaður á svæðinu, en um borð í honum voru 247 manns, flestir frá Sómalíu, Eritreu, Nígeríu og Tsjad.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×