Erlent

Chavez snúinn aftur heim

Hugo Chavez var hress á svölum forsetahallarinnar í gærkvöldi.
Hugo Chavez var hress á svölum forsetahallarinnar í gærkvöldi. MYND/AFP
Forseti Venesúela er snúinn aftur til heimalands síns eftir að hafa gengist undir læknismeðferð hjá vinum sínum á Kúbu. Hugo Chavez hélt ræðu á fjöldafundi í höfuðborginni Caracas í gærkvöldi frammi fyrir þúsundum stuðningsmanna sinna sem fögnuðu forseta sínum innilega.

Chavez veifaði þjóðfánanum og sagðist fullviss um sigur í veikindunum en hann berst nú við krabbamein. Hann tók þó einnig fram að hann gæti ekki tekið mikinn þátt í hátíðarhöldum á þjóðhátíðardegi landsins sem haldinn er í dag, sökum þróttleysis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×