Erlent

Greip telpu sem féll af tíundu hæð

Konan var lögð inn á sjúkrahús enda handleggsbrotnaði hún og missti meðvitund.
Konan var lögð inn á sjúkrahús enda handleggsbrotnaði hún og missti meðvitund.
Tveggja ára gömul kínversk stúlka lifði það af að falla út um glugga á tíundu hæð í borginni Hangzhou á laugardaginn. Stúlkan klifraði út um gluggann og náði að hanga á gluggasyllunni í nokkrar sekúndur áður en hún féll.

Það var henni til lífs að vegfarandi, þrítug kona, sá stúlkuna og náði að grípa hana. Konan missti meðvitund og handleggsbrotnaði þegar stúlkan féll á hana en hún bjargaði um leið lífi litlu telpunnar.

Sú litla var flutt á spítala með innvortis blæðingar en læknar segja að hún muni ná sér að fullu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×