Ný rannsókn sýnir marktæk áhrif farsímanotkunar á heila Þorbjörn Þórðarson skrifar 3. júlí 2011 19:30
Í fyrsta sinn hefur verið sýnt fram á með nýrri vísindalegri rannsókn að farsímanotkun veldur marktækum og mælanlegum áhrifum á efnaskiptin í heilaberkinum. En í nokkur ár hafa verið vangaveltur um hættu á myndun æxlis í heila vegna farsímanotkunar. Um er að ræða nýja rannsókn í JAMA, sem stendur fyrir The Journal of the American Medical Association, tímariti amerísku læknasamtakanna en um er að ræða virt fagtímarit í læknisfræði. Rannsóknin fjallar um áhrif 50 mínútna farsímanotkunar á heilabörkinn, nánar tiltekið sykurefnaskiptin sem eru aukin á þeim stað þar sem rafgeislunin er mest undir símanum. Vilhjálmur Ari Arason, heimilislæknir, segir að í greininni sé í fyrsta sinn sýnt með vísindalegri rannsókn að það séu marktæk mælanleg áhrif á efnaskiptin í heilaberkinum af völdum farsíma en í nokkur ár hafa verið vangaveltur um hættu á myndun æxlis í heila, tengt mikilli farsímanotkun. „Þarna mældust breytingar á efnaskiptum í heilaberki eftir aðeins klukkutímanotkun. Það auðvitað vekur upp spurningar um frekari áhrif og langtímanotkun. Sérstaklega barna og unglinga sem nota farsíma mjög mikið. Rannsakendurnir mælast til þess að foreldrar sjái til þess að börn og unglingar noti frekar handfrjálsan búnað," segir Vilhjálmur Ari. Hann segir að fullorðnir sem noti farsíma mikið þurfi líka að hafa þetta í huga. „Þeir sem tala mikið í farsíma þeir ættu að nota handfrjálsan búnað. Þetta eru fyrstu vísbendingar sem að benda til þess að farsímar geti haft áhrif." Anderson Cooper, fréttamaður hjá CNN, var nýlega með fréttaskýringu um sama mál á stöð sinni þar sem það var niðurstaða lækna að æskilegt væri að nota handfrjálsan búnað á öllum stundum dagsins, ekki aðeins úti í umferðinni. Athyglisvert er að í nýjum tilmælum Alþjóðaheilbrigðismálstofnunarinnar, WHO er mælst til þess að farsíma sé haldið a.m.k tveimur sentímetrum frá eyra ef ekki er stuðst við handfrjálsan. Þá eru framleiðendur orðnir meðvitaðir því í nýjustu bandarísku leiðbeiningunum frá framleiðandanum Research in Motion sem framleiðir Blackberry er mælst til þess sama. Eins og sést er þetta frekar einkennilegt og líklegt að maður heyri líka illa í viðmælandanum og þá er líklega betra að nota handfrjálsan. thorbjorn@stod2.is
Mest lesið Fékk besta nafnið frá frú Vigdísi Innlent Í eðli okkar að fylgjast með náunganum Innlent Umfangsmestu fangaskipti frá tímum kalda stríðsins Erlent „Hér er um fullkomlega eðlileg viðskipti að ræða“ Innlent Hlý og góð tilfinning að mæta á Bessastaði Innlent Hópar slógust en enginn ætlar að kæra Innlent Leiðtogi Hezbollah boðar „nýjan fasa“ eftir að farið var yfir „rauðar línur“ Erlent Blinken segir González réttkjörinn forseta en Maduro situr sem fastast Erlent VG mælist með 3,5 prósent Innlent Furðar sig á kjötafurðarstöðvunum Innlent Fleiri fréttir Í eðli okkar að fylgjast með náunganum Fékk besta nafnið frá frú Vigdísi Hópar slógust en enginn ætlar að kæra „Hér er um fullkomlega eðlileg viðskipti að ræða“ Hlý og góð tilfinning að mæta á Bessastaði Borinn niður af klettaborginni VG mælist með 3,5 prósent Furðar sig á kjötafurðarstöðvunum Frú forseti, klútaveisla og undrandi bændur Fólk keyri ekki fyrr en tólf tímum eftir síðasta sopa „Mýkri leiðir í hörðum heimi“ Tjá sig ekki eftir fullyrðingar ráðuneytisins í nafnabreytingarmálinu Máttu ekki synja kvikmyndagerðarmanni um eftirvinnslustyrk Fólk á förnum vegi: Ein felldi tár og önnur mjög spennt fyrir Höllu Halla Tómasdóttir orðin sjöundi forseti lýðveldisins „Covid virðist vera komið til að vera“ Allt að verða klárt fyrir embættistöku sjöunda forseta lýðveldisins Árásum gegn opinberum starfsmönnum fari fjölgandi Embættistaka, Covid-19 og hótanir í garð lögreglu Aukinn viðbúnaður til að bregðast við eggvopnaógn Rafbílar rétta aðeins úr kútnum eftir dýfu „Ég hef látið orð út úr mér sem hefðu átt að vera ósögð“ Fjórðungur landsmanna sótti símenntun í fyrra Íbúum með skráð lögheimili í Grindavík fækkað um tæpan þriðjung Vandræðasaga Helga: Skortur á hommum, meint „kerlingartussa“ og Facebook-þumallinn Ók á mann og stakk af Rangt að ráðuneytið hafi gefið út leiðbeiningar um kenninöfn Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílveltu í Sjálandi Hefði horft á lokakvöldið hefði Hera Björk komist áfram Bíll hafnaði utan vegar í Hafnarfirði Sjá meira