Innlent

Umferðarslys á Gullinbrú - brúin lokuð til norðurs

Umferðarslys varð á Gullinbrú rétt eftir klukkan hálf tvö í dag þegar tveir bílar skullu saman. Fjölmennt lið sjúkra- og slökkviliðsmanna er á staðnum en beita þurfti klippum á báða bílana til þess að ná tveimur mönnum út. Þeir hafa verið fluttir á slysadeild til aðhlynningar en óljóst er hvort meiðsl þeirra eru alvarleg.

Gullinbrú er lokuð í norður frá Höfðabakka vegna slyssins og biður lögregla vegfarendur að velja aðrar leiðir til þess að komast inn í Grafarvog.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×