Innlent

Kannabis í Kópavogi

Mynd úr safni.
Mynd úr safni.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í iðnaðarhúsnæði í Kópavoginum í fyrradag. Í tilkynningu segir að við húsleit hafi lögreglumenn fundið 155 kannabisplöntur á misjöfnu stigi ræktunar og lítilræði af marijúana.

Tveir karlar á fertugsaldri voru handteknir og yfirheyrðir vegna málsins og var þeim sleppt að loknum yfirheyrslum. Málið telst upplýst.

„Fyrrnefnd aðgerð er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005,“ segir í tilkynningu frá lögreglu. „Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×