Stærsta vandamál í dýravernd á Íslandi óleyst salome@365.is skrifar 14. júlí 2011 11:46 Oft líður langur tími frá því dýraverndunarmál kemur upp þar til gripið er til aðgerða.
Nefnd um dýravelferð skilaði af sér tillögum sínum að frumvarpi til nýrra laga um málaflokkinn síðastliðinn mánudag, þann 11. júlí. Árni Stefán Árnason, dýraréttarlögfræðingur segir að þó svo orðalag laganna auki greinilega vernd dýra, hafi hann orðið fyrir vonbrigðum með drögin en hann óttast að lögin muni ekki leysa stærsta vandamálið í dýravernd á Íslandi, verði tillagan samþykkt í óbreyttri mynd. "Helsta vandamálið í dýravernd á Íslandi undanfarið hefur verið að þegar mál koma upp, þá hefur kerfið virkað mjög seint. Það hefur yfirleitt tekið óralangan tíma að koma dýrum til bjargar." segir Árni en stefnt er að því að úr þessu verði bætt með nýju lögunum. Samkvæmt frumvarpsdrögunum á að færa alla stjórnsýsluframkvæmd í dýraverndunarmálum til matvælastofnunar, en slík ákvörðun þykir Árna torskiljanleg þar sem stofnunin hafi verið gagnrýnd fyrir að sinna ekki nógu vel því hlutverki sem hún gegnir í dag. Það sé því hæpið að ákjósanlegt sé að bæta við verksvið stofnunarinnar og telur Árni líklegt að dýraverndunarmál muni áfram sitja á hakanum verði sú tilhögun að veruleika. Að mati Árna ætti umsjón dýraverndunarmála að vera í höndum aðila sem hafi það afmarkaða hlutverk að bregðast við útköllum vegna illrar meðferðar á dýrum, og bendir hann í því samhengi á sænsku dýralögregluna, sem nú hefur starfað þar í landi í nokkur ár með góðum og skjótum árangri. Árni segir orðalag laganna þó greinilega auka vernd dýra en hann vonast til þess að úrbætur verði gerðar á lögunum áður en þau verði samþykkt. "Ég hef fulla trú á því að Alþingi taki mark á þeim ábendingum um velferð dýra sem fram hafa komið í fjölmiðlum undanfarið og komi þessum málstað málleysingjanna til hjálpar."
Mest lesið Nær dauða en lífi á bráðamóttökunni Innlent „Við erum öll harmi slegin“ Innlent „Faðir þinn byrlaði mér til að nauðga mér með ókunnugum“ Erlent Stal verðmætum fyrir 6,3 milljónir á tveimur árum Innlent Af og frá að einhver sé sýndur í neikvæðu ljósi Innlent „Það skánar ekki við að búa til eins auglýsingu með karllíkama“ Innlent Dæmdur fyrir að drepa bófa sem íslensk kona kom upp um Erlent Drap 81 dýr á þremur tímum Erlent Lögreglan lýsir eftir Sigríði Eyrúnu Innlent Sáu skefti sem reyndist vera af gasskammbyssu Innlent Fleiri fréttir Leikskólabörn og 88 ára harmoníkuleikari Nýliðun í framkvæmdastjórn Pírata „Þetta má aldrei gerast aftur“ Þjóðarátak gegn ofbeldi og hjartnæm kyrrðarstund „Það skánar ekki við að búa til eins auglýsingu með karllíkama“ Lögreglan lýsir eftir Sigríði Eyrúnu Klæðing fauk af veginum í hvassviðri Slökkviliðinu sigað á grunlausa grillara Rausnarskapur Kiwanisklúbbsins Ölvers í Þorlákshöfn Af og frá að einhver sé sýndur í neikvæðu ljósi Tvöfalda viðbúnað á Ljósanótt í kvöld „Við erum öll harmi slegin“ Hraun gæti náð að Reykjanesbraut á skömmum tíma í næsta gosi Hraun gæti náð Reykjanesbraut og umdeild auglýsing Play Þrjár líkamsárásir á Ljósanótt Stal verðmætum fyrir 6,3 milljónir á tveimur árum Aukinn úrtölutónn í umræðum um loftslagsvá Nær dauða en lífi á bráðamóttökunni Sáu skefti sem reyndist vera af gasskammbyssu Efast um núverandi forystusveit Sjálfstæðisflokksins Nýtt fimleikahús óskast á Selfossi Dæmi um að börn komi heim með vopn úr sólarlandaferðum Söluhagnaður af ólöglegri sjónvarpssölu eldsneyti glæpahópa Börn sem flytja vopn til landsins og fjöllistamenn Maður fluttur á slysadeild eftir að pítsa brann Arnar setti yfir tíu milljónir króna í eigið framboð Á slysadeild eftir árekstur bíls og rafhlaupahjóls Opna dyrnar til að minnast Bryndísar Klöru Mjúk lending frekar en niðurskurður í fjárlögum Skoða ábendingar um mann sem elti börn í Fossvogi Sjá meira