Innlent

Þarf að taka Hringrás til rækilegrar endurskoðunar - íbúi vill þá burt

Valur Grettisson skrifar
Eldsvoðinn var mikill en vindáttin var íbúum í hag.
Eldsvoðinn var mikill en vindáttin var íbúum í hag. Mynd/Vilhelm
„Sem borgara, og að sjálfsögðu nefndarmanni hjá Reykjavíkurborg, þá bregður manni við að þetta sé að gerast á sama stað hjá sama fyrirtæki í annað skiptið. Það þarf að taka þetta til rækilegrar endurskoðunar," segir Hjálmar Sveinsson, varaborgarfulltrúi Samfylkingarinnar um eldsvoðann í Hringrás í nótt.

Þar kviknaði í dekkjum og rusli með þeim afleiðingum að mikinn mökk lagði af svæðinu. Það sem varð íbúum til happs var hagstæð vindátt ólíkt brunanum árið 2004, þegar kviknaði einnig í dekkjastæðum, með þeim afleiðingum að flytja þurfti 600 manns af heimilum sínum.

Hjálmar situr í umhverfis- og samgönguráði Reykjavíkurborgar, en hann hann segist ekki hafa faglegar forsendur til þess að gagnrýna málið sjálft og benti því á heilbrigðisnefnd Reykjavíkurborgar.

Hringrás starfar samkvæmt starfsleyfisskilyrðum frá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur en svo vill til að starfsmenn eftirlitsins tóku út svæðið fyrir um viku síðan. Þá kom í ljós að aðstæður stóðust þær kröfur sem settar voru í samninginn á milli borgar og Hringrásar.

Starfsleyfisskilyrði Hringrásar var strax framlengt eftir eldsvoðann árið 2004. Það var svo endurnýjað árið 2008. Leyfið gildir í tólf ár en mögulegt er að endurskoða það á fjögurra ára fresti.

Íbúi á svæðinu sem Vísir ræddi við sagði einn eldsvoða meira en nóg. Norðan-áttin væri ríkjandi á svæðinu og því ljóst að menn voru afar heppnir í nótt með vindátt. Íbúinn spurði ennfremur hvort það þyrfti að bíða eftir þriðja eldsvoðanum til þess að forsvarsmenn áttuðu sig á því að svona starfsemi ætti ekki heima nálægt byggð.

Formaður heilbrigðisnefndar Reykjavíkurborgar, Kristín Soffía Jónsdóttir, gat ekki tjáð sig um málið þegar eftir því var leitað, þar sem hún er á ferðalagi út á landi.

Eldurinn gaus upp á þriðja tímanum í nótt og var allt tiltækt lið slökkviliðsmanna kallað út.

Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðstjóri, sagði sína menn orðna þreytta.

„Þetta er svakalega mikil og erfið vinna fyrir utan hvað þetta er mikil skítavinna þegar þú ert allur skítugur og andar að þér óheilnæmum lofttegundum. Þannig að þetta er dálítið íþyngjandi en við erum að komast fyrir horn og vonum að það séu ekki nema örfáir klukkutímar eftir."


Tengdar fréttir

Gríðarmikill eldur í Sundahöfn

Gríðarlega mikill eldur kviknaði í dekkjum á svæði Hringrásar á fjórða tímanum í nótt. Allt tiltækt lið slökkviliðsins hefur verið kallað út og berst við eldinn. Segjum nánar frá eins skjótt og fréttir berast. Gríðarlega mikill eldur kviknaði í dekkjum á svæði Hringrásar á fjórða tímanum í nótt. Allt tiltækt lið slökkviliðsins hefur verið kallað út og berst við eldinn. Segjum nánar frá eins skjótt og fréttir berast.

Enn barist við eldinn

"Það er verið að berjast við þetta. Það er allt tiltækt lið á staðnum og jafnframt var aukamannskapur kallaður út. Þeir eru að vinna í þessu,“ segir slökkviliðsmaður sem Vísir talaði við í nótt. Eldur kviknaði á svæði Hringrásar í Sundahöfn um fjögurleytið í nótt.

Þakklæti til slökkviliðs og lögreglu efst í huga

Orsakir eldsins á svæði Hringrásar við Sundahöfn eru ókunnar. Þegar er hafin handa við að rannsaka eldsupptökin. Eldurinn kom upp í dekkjum á Hringrásarsvæðinu á þriðja tímanum í nótt.

Slökkvistarf gengið greiðlegar en 2004

Mun greiðlegar hefur gengið að ráða niðurlögum eldsins í Hringrás núna en árið 2004, segir Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu. Hann segir að aðalástæðan sé sú að eldsmatur sé mun minni núna en var þá.

Eldurinn hefur minnkað

Slökkviliðsmenn virðast hafa náð tökum á eldinum. Hann er miklu minni en hann var fyrr í morgun, segir Vilhelm Gunnarsson ljósmyndari Fréttablaðsins sem stendur vaktina við Hringrás í Sundahöfn.

Íbúar í Kleppsholti loki gluggum

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hefur náð tökum á eldi sem logað hefur á Hringrásarsvæðinu frá því á þriðja tímanum í nótt. Tölverðan reyk leggur frá svæðinu. Vindáttin er enn af landi og reyk leggur út á haf. Íbúar í Kleppsholti eru beðnir um að hafa glugga lokaða þó svo að reyk leggi ekki yfir hverfið þar sem lyktarmengun er talsverð, að því er fram kemur í tilkynningu frá almannavörnum.

Aðgerðarstjórn kölluð saman í Samhæfingarmiðstöðina

Aðgerðarstjórn höfuðborgarsvæðisins var kölluð saman í Samhæfingarstöðina í Skógarhlíð í morgun vegna eldsins hjá Hringrás í Sundahöfn. Almannavarnaástandi hefur ekki verið lýst yfir en starfsmenn stöðvarinnar eru í viðbragðsstöðu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×