Innlent

Ferðaþjónustuaðilar í Mýrdal horfa upp á hundruða milljóna tjón

Eggert Sólberg Jónsson, forstöðumaður Kötluseturs í Vík í Mýrdal, segir þjóðveg eitt vera lífæð ferðaþjónustunnar í Mýrdalnum.
Eggert Sólberg Jónsson, forstöðumaður Kötluseturs í Vík í Mýrdal, segir þjóðveg eitt vera lífæð ferðaþjónustunnar í Mýrdalnum.
Ferðaþjónustuaðilar á Suðurlandi segja að lokun þjóðvegarins hafi nú þegar spurst út erlendis og valdi afbókunum fram í tímann. Þeir undrast á seinagangi vegagerðarinnar.

Eggert Sólberg Jónsson forstöðumaður Kötluseturs í Vík í Mýrdal segir þjóðveg eitt vera lífæð ferðaþjónustunnar í Mýrdalnum. „Við undrumst seinagang Vegagerðarinnar, það eru verktakar sem að treysta sér til að koma á vegasamgöngum yfir Múlakvísl á tveimur sólarhringum og það er það sem við viljum sjá gert."

Um er að ræða verktaka á Suðurlandi sem hafa lýst þessu yfir við sveitafélög og Vegagerðina að hægt sé að reisa bráðabirgðabrú á stuttum tíma, viðbrögð við þessu tilboði hafi hins vegar verið lítil. „Það er sú lausn sem að við viljum sjá. við viljum sjá vegasamgöngur komið á yfir Múlakvíslina sem allra allra fyrst, núna fyrir næstu helgi," segir Eggert Sólberg.

Hann segir ferðaþjónustu í Mýrdalnum horfa upp á hundruða milljóna tjón. „Það er búið að vera töluvert mikið um afbókanir og þær afbókanir fram í tímann. Það hefur nú þegar spurst út erlendist að þjóðvegurinn verði lokaður í tvær til þrjár vikur og það er mjög slæmt að það hafi spurst út."

Þá segir Eggert Sólberg selflutninga yfir Múlakvísl góðra gjalda verða en þeir komi hins vegar ekki í stað fyrir almennilegar vegasamgöngur. „Þar til þær komast á er þetta í góðu lagi en verkið mætti ganga hraðar fyrir sig."




Tengdar fréttir

Vinna við bráðabirgðabrú hefst í dag

Vinna við bráðabirgðabrú yfir Múlakvísl hefst í dag og er Vegagerðin þegar byrjuð að flytja vinnuvélar og efni til brúargerðar. Líkt og kunnugt er eyðilagðist brúin yfir Múlakvísl í hamfaraflóði um helgina og þjóðvegur eitt lokaðist. Ferðaþjónustubændur krefjast þess að yfirvöld sýni þann vilja í verki með því að láta einskis ófreistað að koma á vegasambandi um hringveginn án tafar.

Neyðarkall frá ferðaþjónustunni í Skaftárhreppi

Ferðaþjónustuaðilar í Skaftárhreppi hafa sent Ögmundi Jónssyni innanríkisráðherra bréf þar sem þeir lýsa yfir miklum áhyggjum af rofi á þjóðvegi 1 við Múlakvísl. Bréfið ber yfirskriftina Neyðarkall frá ferðaþjónustuaðilum í Skaftárhreppi.

Flytja vinnuvélar og efni til brúargerðar yfir Múlakvísl

Vegagerðin er þegar byrjuð að flytja vinnuvélar og efni til brúargerðar yfir Múlakvísl eftir að brúnna þar tók af í hamfaraflóði um helgina og þjóðvegur eitt lokaðist. Að minnsta kosti einn stór og upphækkaður jeppi fór fram og til baka yfir kvíslina í gær og í ráði er að 40 manna herflutningarúta á vegum einkaaðila selflytji fólk yfir hana á meðan á brúarsmíðinni stendur.

Kalla starfsmenn úr sumarleyfi til vinnu

Vegagerðin hefur kallað hátt í tuttugu manns úr sumarfríi til að vinna að smíði nýrrar brúar yfir Múlakvísl. Engin fljótvirkari lausn er til við þessar aðstæður en að reisa nýja brú og það tekur um tvær til þrjár vikur, segir Hreinn Haraldsson vegamálastjóri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×