Innlent

Vinna við bráðabirgðabrú hefst í dag

Mynd/Vilhelm
Vinna við bráðabirgðabrú yfir Múlakvísl hefst í dag og er Vegagerðin þegar byrjuð að flytja vinnuvélar og efni til brúargerðar. Líkt og kunnugt er eyðilagðist brúin yfir Múlakvísl í hamfaraflóði um helgina og þjóðvegur eitt lokaðist. Ferðaþjónustubændur krefjast þess að yfirvöld sýni þann vilja í verki með því að láta einskis ófreistað að koma á vegasambandi um hringveginn án tafar.

Vegagerðin hefur kallað hátt í tuttugu manns úr leyfum til að hefja störf við brúargerðina. Þórður Tyrfingsson, deildarstjóri hjá Vegagerðinni, sagði á Morgunvaktinni á Rás 2 í morgun að hafist verður handa við a koma upp bráðabirgðabrú strax í dag.

Hægt er að aka hjáleið um Fjallabaksleið nyrðri, en hún er aðeins jeppafær. Þá hefur bannsvæði vegna ferðamanna á Mýrdalsjökli verið minnkað.

Ferðaþjónusta einn af hornsteinum byggðar

„Við lýsum skilningi okkar á því að það taki nokkurn tíma að gera fært yfir ána á nýrri brú, jafnvel þó til bráðabirgða sé, en með þeim stórvirku vinnuvélum sem tiltækar eru, hvetjum við til að unnið verði að því að koma á vegasambandi um hjáleið og að þeim aðilum sem ekki treysa sér til að aka um slíka vegslóð verði veitt aðstoð," segir í tilkynningu frá stjórn Félags ferðaþjónustubænda.

Þar segir að horft sé til ferðaþjónustunnar við endurreisn Íslands og víða sé hún að verða einn af hornsteinum byggðar á landsbyggðinni. „Það er því afdráttarlaus krafa okkar að menn sýni þann vilja í verki með því að láta einskis ófreistað að koma á vegasambandi um hringveginn án tafar, nú þegar í hönd fer hábjargræðistíminn í ferðaþjónustunni. Slíkt er ekki aðeins mikilvægt fyrir þá sem næst búa, heldur ekki síður fyrir orðspor Íslands sem trúverðugs áfangastaðar ferðamann til framtíðar."


Tengdar fréttir

Neyðarkall frá ferðaþjónustunni í Skaftárhreppi

Ferðaþjónustuaðilar í Skaftárhreppi hafa sent Ögmundi Jónssyni innanríkisráðherra bréf þar sem þeir lýsa yfir miklum áhyggjum af rofi á þjóðvegi 1 við Múlakvísl. Bréfið ber yfirskriftina Neyðarkall frá ferðaþjónustuaðilum í Skaftárhreppi.

Flytja vinnuvélar og efni til brúargerðar yfir Múlakvísl

Vegagerðin er þegar byrjuð að flytja vinnuvélar og efni til brúargerðar yfir Múlakvísl eftir að brúnna þar tók af í hamfaraflóði um helgina og þjóðvegur eitt lokaðist. Að minnsta kosti einn stór og upphækkaður jeppi fór fram og til baka yfir kvíslina í gær og í ráði er að 40 manna herflutningarúta á vegum einkaaðila selflytji fólk yfir hana á meðan á brúarsmíðinni stendur.

Kalla starfsmenn úr sumarleyfi til vinnu

Vegagerðin hefur kallað hátt í tuttugu manns úr sumarfríi til að vinna að smíði nýrrar brúar yfir Múlakvísl. Engin fljótvirkari lausn er til við þessar aðstæður en að reisa nýja brú og það tekur um tvær til þrjár vikur, segir Hreinn Haraldsson vegamálastjóri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×